Auddi og Sveppi - ágætis skemmtun

Þeir mega það félagarnir að þeir eru bráðskemmtilegir. Efnistök þeirra er frumleg og oft tekst þeim að hrista rækilega upp í manni. Þátturinn þeirra sem rónar var sláandi ádeila á samfélagið og sömuleiðis þar sem þeir fóru um í hjólastólum. Sveitaþættir þeirra í Hrútafirðinum fóru víst fyrir brjóstið á mörgum, en þar voru þeir bara að sína okkur inn í lífið eins og það gerist að kúabúi samtímans. Ég sá ekki neina niðurlægingu í neinu sem þarna fór fram heldur raunveruleikann sem skemmtilegu ívafi. Heldur fólkið á mölinni virkilega að strákarnir hafi farið þarna inn án vitundar og vilja þeirra sem búið reka og að "niðurlægja beljuna" eru hugleiðingar sem ekki eiga sér neina stoð í veruleikanum. Þetta var gert undir eftirliti og með tilsögn sæðingamanns og er bara sú aðferð sem mest er notuð við að kefla kýr (gera þær kálffullar) í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

221 dagur til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 110308

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband