Ótti við skort

Mikið hefur verið spilað á það undafarna mánuði að auka mjög ótta við skort, í stað þess að flytja fólki þau skilaboð að það sé nóg til fyrir alla. Öll samkeppni í heiminum byggir á þessum ótta, að ekki sé nóg til. Þá skiptir ekki máli hvort verið er að tala um viðskiptavini, vöru eða fjármuni. Þegar kreppa skellur á, eru skyndilega á sama tíma nægilega margir hræddir við skort, til verulega kreppi að. Snögglega verður þurrð á vöru og fjármagni eða hvoru tveggja og fjöldinn kippir að sér höndum og verða hræddir. Þessi ótti verður til í huga hvers og eins frá utan að komandi upplýsingum. Hver og einn verður að vera reiðubúinn að taka þátt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við þurfum bara að vera viðbúin því að líða skort í kreppu. Hvort sem það er núna eða einhvern tímann í fortíð eða framtíð. Það er nú bara þannig. Eigðu góðan dag og takk fyrir flott blogg og innleggin þín eru frábær.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 17:18

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þarna er ég að tala um huglægan skort og honum getum við stýrt. Þó við getum ekki eignast þetta eða hitt núna á stundinni, þýðir það ekki að okkur skorti þetta og hitt. Það bar bíður smá.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 26.7.2009 kl. 18:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

234 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 110260

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband