Áróðursherferð gegn ESB í gangi hér á landi

Nú þegar umsóknarferlið okkar að ESB hefur breyst í viðræðuferli við sambandið, eru hafin enn ein áróðursherferðin gegn því að við göngum þarna inn. Nú berjast margir um á hæl og hnakka og telja að okkar helsta "bjargráð" sé að draga umsókn um aðild að ESB til baka.

Það er nokkuð ljóst að fátt hindrar okkur að fá aðgang að ESB, falli okkur niðurstaða aðildarsamnings í geð og hann verði samþykktur hjá þjóð og þingi.

Dæmalausar "gróusögur" eru settar af stað, eins og; "herskylda" - "fiskimiðin fyllist af erlendum togurum" - "þjóðin verði matareitrun að bráð" .  Trúir þessu einhver, ég bara spyr.

ICEAVE deiluna veður að leysa, en sú deila er óháð ESB á allan hátt. Að deilan sé óleyst, sennkar efnahafsbata okkar. Svo eru það auðlindirnar - fiskurinn - orkan - vatnið.

Ef við seljum þetta ekki frá okkur sjálf, þá munum við halda yfirráðum auðlindanna innan ESB. Það gera núverandi aðildarríki, Bretar eiga sjálfir gas og olíu í Norðursjó, Finnar skógana og svo framvegis.

Þó þessar og margar fleiri staðreyndir um ESB liggi á borðinu, eru alltaf einhverjir tilbúnir til að blasa út bullið, skara í glæður rangra túlkana og beinlínis ljúga að þjóðinni til að viðhald óttanum við útlönd.

 


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

233 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 110268

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband