Góðar fréttir

Loksins koma góðar fréttir og kominn tími til. Endurskoðun áætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að vænta bráðlega og þá fer að koma hreyfing á málin hér heima. Nú fer að fækka vígtönnum Hrun-flokkanna sem betur fer. Það sannast með þessu hve ríkisstjórnin er þolgóð í öllu ofviðrinu sem á henni hefur dunið


mbl.is Bjartsýnn eftir fund með Strauss-Kahn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Ríkisstjórnin var rekinn útí þetta horn með synjun forsetans og þjóðaratkvæðagreiðslunni að þurfa loksins að standa í lappirnar og að gæta hagsmuna þjóðarinnar í ICESAVE málinu.

Hingað til hefur ESB daðrið og þessi heimskulega ESB umsókn sem 70% þjóðarinnar er algerlega andvíg þessari aðild orðið þess valdandi að ekki hefur mátt gæta raunverulegra hagsmuna þjóðarinnar í ICESAVE málinu.

ESB tilgangurinn sem á að keyra í gegn helgar einn meðalið.

Þetta er svona álíka hlæilegt og kerlingin í "Sálini hans Jóns míns" Skjóðunni með ESB umsókninni og þjóðinni sjálfri skal með góðu eða illu troða milli stafs og hurðar inn í himnaríki ESB VALDSINS ! Þvílíkir loddarar !

Gunnlaugur I., 26.3.2010 kl. 18:33

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Aftur og aftur þarf ég að minna sf-fólk á það að sf var í ríkisstjórn þegar bankarnir hrundu og að bankamálaráðherra var sf-maðurinn Björgvin G. Sigurðsson.

Er að koma skriður á hlutina - icesave er stopp um óákveðin tíma vegna " samningasnilldar " Steingríms - SA er búnir að segja sig frá stöðugleikasáttmálanum

OG esb - jú 70% þjóðarannir eru á móti því og þingmeirihluti er ekki fyrir máliu - ertu búin að skoða hverjir eru aðalræðumenn á fundarherferð Heimsýnar um landið - bjöllugabb er þessi aðildarumsókn nú kölluð - en þú ert væntanlega sátt við að fleygja eins og einum milljarði í klósettið

Ríkisstórnin er klofin í öllum stórum málum Nato, esb, stóriðu o.s.frv.

Óðinn Þórisson, 26.3.2010 kl. 19:47

3 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Mér þykir þú bjartsýn Hólmfríður.Hélt að okkur vantaði síst meiri lán.

Ragnar Gunnlaugsson, 26.3.2010 kl. 21:44

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sælir piltar - sínum augum lítur hver á silfrið og þannig er það bara.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 26.3.2010 kl. 23:59

5 identicon

Ég hefði haldið að svona jákvætt blogg myndi kalla á jákvæð viðbrögð.

Ég verð feginn þegar Icesave er í höfn og við erum búin að fá AGS lánin.  Þá er hægt að horfa fram á veginn.

En getur verið að við séum að biðja þjónustufulltrúann um of háan yfirdrátt? Þá verðum við bara að passa að eyða honum ekki strax í vitleysu;) er það ekki?  

Eigið þið öll góða helgi.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 27.3.2010 kl. 05:39

6 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sæll Stefán, Ég held að sá/þau sem sjá um að biðja þjónustufulltrúann umyfirdráttinn, fari mjög varlega og muni halda fast um budduna. Sumir eri hræddir við jákvæðni og telja að hún viti á neikvæða atburði. Gömul klisja!!!!!!!!!

Góða helgi.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.3.2010 kl. 07:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

233 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband