Formenn Hrun-flokkanna

Sigmundur Davíð hefur alla sína formannstíð hjá Framsókn hegðað sér eins og hann væri formaður í öfgahóp sem væri eingöngu til þess ætlaður að valda usla. Það er svo langur vegur frá ábyrgð í hans fari. Hann talar oftast eins og það sé enginn morgundagur og hann muni ekki þurfa að standa skil á sínum málflutningi gagnvart neinum.

Bjarni Ben Íhaldsformaður er að því leiti í annarri stöðu að hann er með innbyggða stýringu sem haldið er utanum í Hádegismóunum. Það eru líka svo ótrúlega margir sem enn bakka upp greifann þar.  Ef ekki væru fúlgur fjár í því spili, er ég hrædd um að fljótt muni þynntist í liðinu og batteríið klárast af stýringunni í hendi greyfans. Stóra spurningin er, hvað mun BB segja þá?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Alla tíð, Sigmundurm  hann er búinn að vera formaður í ár.....

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.1.2010 kl. 03:42

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Og hefur spilað sömu plötuna frá upphafi

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.1.2010 kl. 04:10

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Og Samfylkingin er væntanlega með í hópi hrunflokkanna vænti ég?

Jón Steinar Ragnarsson, 3.1.2010 kl. 06:40

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Samfylkingin er ekki Hrun-flokkur og það veist þú vel Jón Steinar.

Samfylkingin er flokkur sem er að leiða okkur frá hruni til heiðarlegra samfélags. Er að hreinsa út áratuga spillingu úr margflæktu valdaklíkusamfélagi þar sem embættismönnum hefur verið raðað inn, fyrst og fremst  eftir flokksskýrteinum. Það varð svo bara að koma í ljós hvernig þeir hinir sömu dygðu í starfinu.

Áratugaseta Íhaldsins í Dómsmálaráðuneytinu hefur leitt af sér að dómarar landsins hafa orðið að vera flokksbundnir Sjálfstæðismenn, svo náðaraugu ráðherra kæmu auga á hæfni þeirra til starfs í réttarsölum landsmanna.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.1.2010 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

220 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 110312

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband