4.10.2009 | 23:16
ICESAVE, Ögmundur og Guðfríður Lilja.
Það eru margar hliðar á þessu máli og ekki einfalt að vera með afgerandi útskýringar. Þá er ég ekki að meina ICESAVE málið sjálft, heldur afstöðu Guðfríðar Lilju og Ögmundar til meðferðar þess i ríkisstjórn.
Það er vissulega nauðsynlegt að taka lýðræðislega á þessu máli og það hefur einmitt verið gert á undanförnum mánuðum. Hvaða breytingar þarf að gera nú, er enn ekki ljóst þar sem ekki hefur náðst samkomulag við Breta og Hollendinga um endanlegan frágang.
Mikið liggur við að þessi ríkisstjórn haldi velli og hér verði komið á samfélagi jöfnuður og félaghyggju. Það má ekki gerast að peningalegar skuldbindingar eftir 15 ár verði til þess að kollvarpa þeirri uppbyggingu.
Að meta hagsmuni getur verið flókið, en í þessu tilfelli er að mínu mati, verið að tala um meiri hagsmuni okkar nú við samfélagslega endurreisn, og aftur á móti minni hagsmuni vegna fjárhagslegra hagsmuna eftir mörg ár.
Því segi ég að lokafrágangur ICESAVE sé svo mikilvægur nú að við höfum hreinlega ekki efni á draga málið á langinn og ALLS EKKI AÐ FÓRNA STJÓRNARSAMSTARFINU FYRIR ÞETTA MÁL.
Samþykktu Icesave blindandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:18 | Facebook
Um bloggið
33 dagar til jóla
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Því miður, held ég að jöfnuður og félagshyggja, sé ekki útkoman.
Ég reikna, með að bankarnir verði gjaldþrota á ný, síðasta lagi næsta sumar. Stjórnin fari þá frá, í allra síðasta lagi.
Málið er, að Icesave er í strandi. Stefnan sem fylgt er, mun ekki ná fram að ganga. Það þarf einfaldlega, að stokka spilin upp á nýtt.
Eina sem ég sé framundan, að ef reynt verður að halda áfram á sömu braut, er áframhaldandi upphleðsla vandamála - þar til, að allt hrynur og ríkisstj. hrökklast frá.
Þú getur litið á nýleg blogg mín, til að sjá nánari röksemdafærslu - síðustu 3.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 5.10.2009 kl. 00:46
Fólk þarf nú að vera vel vakandi ef það er að samþykkja samning eins og Icesave. Ég held að menn verði nú að vera vakandi.
En hvað er að þegar ekkert er að.
Eigðu gott kvöld Hólmfríður mín.
Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 18:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.