30.8.2009 | 16:44
Ábyrgð á þjóðmálunum í dag
Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, tekur nú ábyrgð á og leitar lausna á þeim gríðarlega vanda sem þjóðin stendur frammi fyrir. Það hefur sennilega farið fram hjá ýmsum sem hæst láta og tala um ábyrgð núverandi ríkisstjórnar á hruninu, að grunnurinn að þeirri peningamálastefnu sem leiddi okkur á þær slóðir sem við erum á í dag, var lagður af ríkisstjórnartíð Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks.
Þeir sömu flokkar hafa verið við völd hér, annar eða báðir, meira og minna frá Lýðveldisstofnun. Samfylkingin sat að sjálfsögðu í þeirri ríkisstjórn sem var við völd þegar hrunið átti sér stað. Það má auðvitað segja að hún sem minni flokkurinn í ríkisstjórn, hefði getað gert stóra hluti í að bjarga bönkunum frá falli. Sú óskhyggja er reyndar mjög fjarri lagi og sannast best á því hvernig Sjálfstæðisflokkurinn þverskallaðist við þeim aðgerðum sem Samfylkingin vildi grípa til strax eftir hrum. Og enn er Íhaldið að tefja, reka ýktan áróður og reyna allt til að koma hreinsunaröflunum frá völdum.
Við sitjum uppi með orðinn hlut í fjármálakerfinu og nú mundi ég halda að allir vildu standa saman að því erfiða endurreisnarstarfi sem hafið er. Sá hávaði sem er í forystu Íhalds og Framsóknar nú um þessar mundir, er fyrst og fremst hugsaður til að dreifa athyglinni frá mistökum þessara flokka og þeim gríðarlegu hagsmunatengslum sem liggja frá atvinnulífinu og inn í þessa tvo flokka. Þar á margt eftir að koma upp á yfirborðið sem fólk mun furða sig á að hafi verið staðreynd, jafnvel um áratuga skeið. Þar er ekki endi eiga verið að tala um refsiverða hluti. Heldur miklu fremur óeðlilega og ósiðlega, staðreyndir sem fela í sér mismunun, ranglæti, að verið sé að hygla þessum á kostnað annarra o.s. frv.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
33 dagar til jóla
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 110484
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.