Björgun eða höft !!

Hlustaði á panelumræðum á fundi Samfylkingarinnar um leiðir jafnaðarmanna í atvinnu- og velferðarmálum, þar sem fjallað var um ávinning af umsókn um aðild að ESB og fleira. Sjá hér

Ég er algjörlega sammála því sem þarna kemur fram.  Kristínu hjá Auði Capital kallar hina leiðina (ekki ESB) jafngildi sjálfsmorði og því verður að forða. Vilhjálmur Þorsteinsson talar um kalda vatnið sem renni milli skinns og hörunds, ef ekki verði bugðist við og aðildarviðræður hafnar .

Ég ætla ekki að búa hér á þessu landi mikið lengur ef ekki verður farið í þessar viðræður í sumar, það er bara svo einfalt. Ég er tæplega 65 ára og hvað með allt unga fólkið með börnin, það fer og hvað verður þá eftir. Jú þrákálfar sem berja hausum við grjót, gamalt ósjálfbjarga fólk og einhverjir sem ekki teysta sér að taka sig upp og flytja.

Verið er að þrugla um hluti eins og rétt gengi í gjaldmiðilsskiptum og einhverja hugmyndafarsa. Hvað er fólk að hugsa, mín upplifun er að við séum að sigla inn í þröngan fjörð með háum fjöllum á alla vegu. Fjörðurinn mun síðan lokast, sambandið við útlönd rofnar og að nokkrum tíma liðnum verðum við komin á einskonar Breiðavík þar sem alskyns ómanneskjulegar reglur gilda. Matur lítill og einhæfur, allt skammtað og skorið við nögl. Ekki má fara neitt og engar heimsóknir mögulegar, úff. Ég vil ekki þetta, en þú  ?????????????

Nei við erum á strandstað og björgun er möguleg. Við eigum auðvitað að skoða hvort leiðin er fær og hvað það kostar okkur. Ég er reyndar ekki í nokkrum vafa um að leiðin er fær og mun aldrei kosta okkur svo mikið að hún borgi sig ekki. En auðvitað gerum við samning á okkar forsendum, höldum sjálfstæðinu og sjálfsforræðinu. Höldum lífskjörunum og sjáum fram á að þau batni á komandi árum. Jöfnuður mun aukast enn frekar og við getum með okkar atorku og dugnaði byggt upp fyrir myndarsamfélag, með auknu lýðræði, jafnræði og sjálfstæði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Algjörlega sammála. Takk fyrir skýran og skilmerkilegan pilstil, Sigurbjörg.

Við eigum að kynna okkur hvað er í boði, með því að fara í aðildarviðræður við ESB og það sem fyrst. Síðan mun þjóðin eiga síðasta orðið.

Takk, takk,

Kolbrún Bára

Kolbrún Bára (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

219 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 110321

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband