Nú er ég bæði sár og reið

Það er alveg með ólíkindum að Sjálfstæðisflokkurinn hafi getað kúgað meiri hluta Alþingis Íslendinga með þessum hætt. Og að meirihlutinn hafi látið undan Íhaldinu með það að fella kaflann um Stjórnlagaþingið út úr Stjórnarskrárfrumvarpi stjórnarflokkana. Og enn strönglar Íhaldið um kaflann um eignarhald ríkisins á auðlindum. Hvað ætlar þetta íhaldslið að ganga langt.

Þessi flokkur sem hefur stjórnað landinu með hagsmuni flokksgæðinga í huga um árabil, hindrar nú framgang þess að auka lýðræði á Íslandi með því að leggjast gegn því að Stjórnlagaþing endurskoði stjórnarskrána okkar. Hvernig má það vera að þetta sé að gerast á 21. öldinni í elsta lýðræðisríki veraldar. Ég skammast mín í hrúgu fyrir að hafa á árum áður tilheyrt þessum gjörspillta söfnuði einkahagsmunagæðinga sem kallar sig Sjálfstæðisflokk.


mbl.is Stjórnlagaþingið út af borðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ThoR-E

Þetta var lélegt!

ThoR-E, 14.4.2009 kl. 19:48

2 identicon

Mjög lélegt. Þetta er sárt....

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 21:21

3 Smámynd: Valan

Lýðræðið 0 - Flokksræðið 1

Valan, 14.4.2009 kl. 21:24

4 Smámynd: Gerður Pálma

Ég bið og vona að heiðarlegir Sjálfstæðismenn hafi kjark til þess að gefa Sjálfstæðisflokknum, sem í dag á ekkert skylt við nafnið sem hann ber, frí og kjósi í þetta skipti Borgaraflokkinn til þess eins að byggja upp og tryggja það lýðræði sem allir heiðarlegir Sjálfstæðismenn sem og aðrir pólitíkusar sem bera hag Íslands og íbúa þess fyrir brjósti vilja sjá verða að veruleika. Eftir að heiðarlegt Nýtt Ísland verður stofnað þá munu flokkarnir fylgja á eftir þar sem flokksmenn hugsanlega fara að þora að vinna sjálfstætt, samkvæmt samvisku sinni,  fyrir hönd þjóðarinnar og verði verðir því trausti sem þjóðin sýnir þeim. 

Gerður Pálma, 14.4.2009 kl. 21:49

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Gerður Pálma ert þú ekki að meina Borgarahreyfinguna, ekki það að ég styðji það framboð, en höfum nafnið rétt. Ég skil samt vel að fólk ruglist á þessum nöfnum.

Ég vil minna á www.nyttlydveldi.is en þar er hægt að skrifa undir áskorun um að efna til Stjórnlagaþings

Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.4.2009 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

220 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 110319

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband