2.4.2009 | 16:29
Frumvarp um Stjórnlagaþingið mjakast áfram
Mikið er ég glöð yfir að önnur umræða um frumvarp ríkistjórnarinnar um Stjórnlagaþingið sé hafin. Það eru mikil og góð tíðindi að nú eigi að efna til Stjórnlagaþings til að endurskoða og eða semja nýja stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland.
Það eru stór tímamót í sögu okkar að þetta mikilvæga mál sé komið í farveg. Mér að meinalausu mega sjálfsstæðismenn tala lengi um málið, ég þarf ekki að hlusta og ég hygg að þingsalur verði nokkuð fámennur undir öllum langlokunum.
Mikilvægast er að málið verði afgreitt sem lög frá Alþingi fyrir þinglok. Þá er mikill sigur unnin yfir valdablokkum, hagsmunaklíkum og gamaldags ráðherraræði. Ég mun fagna vel og innilega þegar þetta mál er í höfn. Góðir hlutir gerast hægt.
Umræða um stjórnarskipunarlög hafin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
33 dagar til jóla
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 110484
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
En það verður ekki að lögum fyrir þinglok. Það er ég alveg 150% viss um. Sjáðu bara til. Mér finnst svo lítið vera að gerast á þinginu núna að það er ekki fyndið. Þetta er skoðun mín og örugglega skoðun margra annara.
Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 16:58
Birgir Ármannsson er hvergi hættur hann mun jafnvel fórna lífi sínu fyrir flokkinn til þess að frumvarpið nái ekki fram að ganga.
Finnur Bárðarson, 2.4.2009 kl. 17:11
Innlitskvitt og ljúfar notalegar kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 2.4.2009 kl. 18:18
Þú meinar Finnur, já baráttan um völdin í landinu er hörð þessa dagana
Hólmfríður Bjarnadóttir, 2.4.2009 kl. 21:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.