Dómharkan eykst dag frá degi

Það sem fólk kýs að kalla mótmæli er að taka á sig mynd einhverskonar ofsókna. Þessar ofsóknir snúast gegn fólki á mjög ófyrirleitinn hátt. Hvað eru allar kjaftasögurnar að segja okkur, eitthvað sem einhver heldur að geti hugsanlega verið rétt. Við búum í lýðræðisríki og þar er réttarfar sem  tekur á þeim afbrotum sem framin eru.

Í lýðræðisríkjum er það ekki dómstóll götunar sem tekur fólk, dæmir það og setur það í nokkurskonar Gapastokk.  Þá er komin heimild til að kasta í það öllum þeim skít sem vegfarendum um netheima dettur í hug, svo ekki sé talað um þá sem komast í návígi við viðkomandi persónu/hóp. Þessa hegðun erum við Íslendingar nú að sýna okkar samborgurum og það finnst mér ekki sæma okkur.

Það er virkilega kominn tími til að við stöldrum við og hugsum okkar gang. Er það svona sem við viljum að viðmótið sé við okkur sjálf. Erum við sem manneskjur orðin svo fullkomin að mistök eru ekki lengur heimil.  Erum við sjálf svo miklu betri en það fólk sem við erum að fordæma. Þó við séum reið, svekkt og sár, þá lagar svona hegðun og hugsunarháttur ekki nokkurn skapaðan hlut, nema síður sé.

Svona hegðun veldur okkur sjáfum vanlíðan og óþarfa kvöl. Við skulum heldur sameinast um að huga að því fólki sem á í erfiðleikum. Vera góð hvert við annað, hjálpsöm og skilningsrík.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

220 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband