Eldarnir brenna - við þurfum að skipta út krónunni á næstu vikum

Þessi grein eftir B.P. er eins og töluð út úr mínu hjarta. Ég er ekki tilbúin til að borga meira með þessum ómaga okkar, krónunni ef ég get með einhverju móti komist hjá því. Þarna er leið og ef hún er fær (eins og greinarhöfundur heldur fram) þá vil ég að hún sé farin strax.
Baldur Pétursson

Við erum í kapphlaupi við tímann, eldarnir brenna enn og við þurfum að skipta út krónunni á næstu vikum. Þetta segir Baldur Pétursson, aðstoðarframkvæmdastjóri Þróunarbanka Evrópu.

Daginn sem bankaútrásin dó - mánudaginn 6. okt. og allar götur síðan hafa satt að segja fáir mælt krónunni bót. Söguleg tíðindi urðu á ársfundi ASÍ nýverið þegar sambandið lýsti yfir löngun til að Ísland færi í Evrópusambandið og tæki upp evru.

Lengra er síðan að Samtök atvinnulífsins lýstu krónuna steindauða og Samtök iðnaðarins hafa í mörg ár barist fyrir upptöku evru. Þá er ótalinn fjöldinn allur af málsmetandi mönnum, ráðherrum í öðrum ríkisstjórnarflokknum, varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefur verið að fikra sig í þessa átt og kynstrin öll af blaðagreinum frá áhyggjufullum almenningi hafa verið birtar nú í blábyrjun kreppunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Reyndar finnst mér þessi umræða um að skipta krónunni út fyrir EURO vera alveg stórklikkuð.  Verðlag í öllum þeim löndum sem tekið hafa upp EURO hefur hækkað mikið. Svo þessu fylgir hækkað verðlag.

Vandamálið liggur ekki í krónunni sjálfri. Hún er allra góðra gjalda verð. Vandamálið liggur í því að ódugandi og gersamlega þekkingarlausir aðilar hafa stýrt krónunni. Krónan er aldrei betri en þeir sem stýra henni, það sanna dæmin.  Töfralausn er ekki fáanleg með EURO, heldur missum við allar ráðstöfunar og stjórnunarmöguleika gjaldmiðilsins ef við göngumst EURO á hönd. Það verður ekki aftur snúið. Vandinn er bara að þeir sem stjórna áttu gengi krónunnar gerðu það ekki.

Baldur Gautur Baldursson, 9.11.2008 kl. 20:21

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það á að taka upp gjaldmiðil einhliða eins og Ársæll Valfells er að stinga upp á í Silfur Egils. Mun hagkvæmari leið en að koma jafnvægi á krónuna. Þetta getum við sjálf ákveðið að gera.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 9.11.2008 kl. 21:09

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Tillaga Ársæls er allrar skoðunar verð. Ef við komumst hjá griðarlegum lántökum, eða minnstakosti ef þær yrðu minni, er þá ekki til mikils að vinna. Krónan er ónýr og búin, við verðum að viðurkenna staðreyndir og bregðast við því eins og hægt er. Valkostirnir eru ekki margir. 

Hólmfríður Bjarnadóttir, 11.11.2008 kl. 02:01

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Tillaga Ársæls er allrar skoðunar verð. Ef við komumst hjá gríðarlegum lántökum, eða minnsta kosti ef þær yrðu minni, er þá ekki til mikils að vinna. Krónan er ónýt og búin, við verðum að viðurkenna staðreyndir og bregðast við því eins og hægt er. Valkostirnir eru ekki margir. 

Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.11.2008 kl. 02:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

235 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 110256

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband