16.4.2010 | 11:26
Viðbrögð forsetans við rannsóknarskýrslunni gagnrýnd harkalega.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti vor hefur farið mikinn yfir umfjöllun um sig í Rannsóknarskýrslunni og þá sérstaklega siðfræðihlutann. Hann virðist trúa því að með stóryrtu orðskrúði geti hann enn einu sinni valtað yfir álit annar á sér og sínum gjörðum.
Núna er hann samt að deila við algjöran ofjarl sinn, eða Rannsóknarnefndina í heild sinni. Það er eins og hann átti sig ekki á því gríðarlega vægi sem skýrslan hefur í hugum þjóðarinnar. Hann virðist hafa misst flugið og tekið í rangt handfang til að hækka það að nýju. Einhver líkti honum við Davíð Oddsson og slík samlíking er vart til vinsælda fallin á Íslandi í dag.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
33 dagar til jóla
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Forsetinn er gjörsamlega búinn að niðurlægja embættið að hann á að segja af sér strax.......Hann er sér og þjóð sinni til skammar.....það vita allir sem vilja vita að hann hefur orðið sér til mikillar skammar og niðurlægt forsetaembættið.....
Jón Kr. Óskarsson (IP-tala skráð) 17.4.2010 kl. 11:28
Vinsældavogin er ekki mjög haldgóður mælikvarði fyrir Bessastaðabóndann sem stendur. Ef það er virkilega sú vog sem stýrir gjörðum hans þá gæti afsögn verið næsti leikur, hver veit.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 17.4.2010 kl. 12:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.