27.2.2010 | 02:03
Rannsóknarskýrslunni seinkar enn - Bjarni Ben hlakkar til að takast á við niðurstöðurnar
Engan hef ég heyrt segja það að hann hlakkaði til að takast á við niðurstöður rannsóknar skýrslunnar, utan formann Sjálfstæðisflokksins Bjarna Benediktsson. Eitthvað fannst mér holur hljómur í þessari yfirlýsingu Bjarna nú í kvöldfréttunum. Held reyndar að hann hefði ekki átt að láta sér detta í hug að segja þetta, þó móarnir hafi hvíslað þessu að honum. Það er alls ekkert fagnaðarefni sem í henni stendur og ekki við því að búast.
Það var afar brýnt að hefja þessa rannsókn á sínum tíma og rétt hjá BB að nefna sinn flokk sem aðila að þeirri ákvörðun. Það á hver það sem hann á. Ég hlakka ekki til að sjá skýrsluna, en býst þó við að ég þrælist í gegnum hana til fróðleiks, en ekki skemmtunar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:49 | Facebook
Um bloggið
32 dagar til jóla
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 110485
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er undarlegt að einhvern hlakki til skýrslunnar, hvað þá formanns helsta hrunaflokksins, nema viðkomandi viti að skýrslan taki ekki á einu né neinu.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.2.2010 kl. 02:52
Hann segist hlakka til að takast á við það verkefni og á þá trúlega viðþað að verja allann pakkann frá Íhaldinu. Trúlegt eða hitt þó heldur.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.2.2010 kl. 03:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.