26.12.2009 | 20:37
Lambasteik á heimsmælikvarða
Litla fjölskyldan mín var að standa upp frá því að snæða dýrindis steikt lambalæri. Þetta er með allra bestu lambasteik sem ég hef borðað á ævinni. Á Hvammstanga er lítil kjötvinnsla, Kjöthornið sem Guðmundur Helgason kjötiðnaðarmaður á og rekur. Keyptum hjá honum 3 læri fyrir jólin til að gefa 2 börnum okkar og 1 til eigin nota. Það var einmitt lærið frá Guðmundi sem við vorum að borða. Þessi læri kryddaði Guðmundur 14 des og þau hafa síðan verið í kæli. Kryddið milt og bragðgott án þess að yfirgnæfa sjálft kjötbragðið. Steikin orðin mjög meir og kryddbragðið búið að ná vel inn í kjötið. Ef þið viljið virkilega gera ykkur dagamun þá er bara að hafa samband við Kjöthornið Strandgötu 1 Hvammstanga.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:51 | Facebook
Um bloggið
31 dagur til jóla
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góð lambalærin, þau eru alltaf jafn góð. En ekki var hangiketið og það allt verra. Það er bara æðislegt líka.
Eigðu gott kvöld vinur.
Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 26.12.2009 kl. 21:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.