Söngurinn nær inn í lokaðan heim

Frábært framtak og mikil manngæska þar að baki. Heimsóknir söngfólks á dvalarheimili aldraða er mjög vanmetin dægrastytting fyrir það fólk. Hef sjálf upplifað ótrúlega hluti hvað það varðar sem fyrrverandi starfsmaður á heibrigðisstofnun þar sem margir aldraðir dvöldu. Það sama á við um bundið mál. Man eftir einstaklingi sem vart þekkti maka sinn lengur, en kunni vísur og fór með þær með mér. Ég byrjaði hendingu og viðkomandi kom með lok henni. Ef farið var með sömu vísuna aftur og aftur frá degi til dags, var eins og vísan rifjaðist smám saman upp. Ef viðkomandi hlustaði á lifandi söng, voru líkamshreyfingar í takt við hljómfallið og klappað af miklum krafti á eftir.  Gleðin skein úr augum og látbragði.


mbl.is Elligleði í Fríðuhúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

32 dagar til jóla

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 110485

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband