12.9.2009 | 18:29
Að kaupa mat fyrir fjölskylduna eða ???
Undanfarið hefur verið talað um að fólk verði að velja um að greiða af lánum eða kaupa mat fyrir fjölskylduna. Það er mjög slæm staða og engan undrar þó matarkaupin gangi fyrir.
Ég hef engan heyrt tala um að velja á milli þess að kaupa tóbak og áfengi eða kaupa mat. Þetta sætir að mínu mati nokkurri furðu, þar sem verið er að tala um afar heilsuspillandi neyslu á tóbaki.
Neysla áfengis umfram tiltekið lágmark (man ekki hvað það er) er líka talin heilsuspillandi. Ganga læknar orðið svo langt að líkja þessum efnum við eiturlyf, samanber nýafstaðið læknaþing
Ég dvaldi á Lungnadeild LSP í Fossvogi í tvo sólarhringa nú í vikunni. Þar sá ég eins og vænta mátti fólk sem gekk um með súrefniskúta og var lafmótt þrátt fyrir súrefnið og hæga yfirferð. Gaf mig á tal við nokkra og það var sama sagan, þetta var reykingafólk.
Hitt þar m.a. konu sem er 3 árum eldri en ég (sem er fædd í ársbyrjun 1945). Hún kom vart upp orði eftir að hafa gengið þvert yfir ganginn.
Ég sjálf greindist nýverið með kæfisvefn sem rekja má til reykinga meðal annars, en 75% þeirra sem greinast með kæfisvefn hafa einhvern tímann reykt. Ég gerði slíkt frá 17 ára til 50 ára, en þó aldrei meira en 15 til 18 rettur á dag.
Ég skora á fjölmiðlafólk að skoða af alvöru hvort fólk sem ber sig illa vegna peningaleysis, er að eyða sínum dýrmætu krónum í tóbak og áfengi.
Þarna er góð leið til að skera niður útgjöld og þá peninga má nota í mat, föt og skólabækur fyrir börnin og svo margt annað bráðnauðsynlegt.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:30 | Facebook
Um bloggið
31 dagur til jóla
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl Hólmfríður mín.
Ég verð nú að vera alveg hreinskilinn þegar að ég skrifa hér hjá þér.
Mér finnst ástandið og kjör margra hafa versnað hér á Íslandi eftir að vinstri stjórn Samfylkingar og VG tók við völdum í apríl s.l.
Það er búið að draga úr útgjöldum til velferðarmála um tugi miljarða og enn verður dregið saman.
Bíddu við, hvar er aftur Velferðar ríkisstjórnin sem átti að taka við völdum hér í apríl? Voru það bara kosninga loforð sem ekkert mark er takandi á? Ég held það.
Mér finnst Samfylkingin ekki vera að standa sig í stykkinu og ég mun alvarlega íhuga að kjósa hana ekki aftur til stjórnarsetu þegar í næstu kosningum. Sem verða örugglega mjög bráðlega.
En bestu kveðjur og hafðu það sem best.
Valgeir.
Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 20:37
Vissulega hafa kjörin versnað, það er alveg rétt og það er vegna þeirr hörðu aðgerða sem krafist er meðan við erum að ná tökum á hrundu samfélagi. Ég tel næsta víst að hvaða ríkisstjórn sem hefði viðnú í vor, hefði orðið að skerða kjör einhverra. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar skerti kjör þeirra verst settu, örykja og aldraða í góðæri. Það segir mér ef þau öfl hefðu tekið við, hefðu kjör þessara hópa ef til vill skerst enn frekar en nú er. Ég er ekki að mæla því bót að núverandi stjórn hafi gert það og það eru mér viss vonbrigði að svo væri gert. Ég tel það nokkuð víst að mikil endurskipulagning verði gerð í öllu kerfi ríkisins og það mun spara ríkinu útgjöld. Við sem erum í þessum tveim hópum verðum að halda vöku okkar og vera á varðbergi gagnvart okkar kjörum. Ég skil vel að þú sért í vafa um hvaða flokk þú styður og tíminn einn mun leiða slíkt í ljós.
Góða helgi
Hólmfríður Bjarnadóttir, 12.9.2009 kl. 22:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.