Lögbann Kaupþings á RUV.

Lögbann Kaupþings á umfjöllun RUV á upplýsinga ef glærum sem birtust á netinu, eru að mínum dómi hláleg aðgerð. Netnotkun er mjög almenn og auk þessa hafa flestir fjölmiðlar á Íslandi fjallað um málið. Hverja er verið að friða með þessu káki og hver er hin raunverulega meining. Ég er ekki svo djúpvitur og reynd í klækjastjórnun að ég skilji málið.

Vissulega á að ríkja bankaleynd um almenn bankaviðskipti. En þegar almannahagsmunir eru eins ríkir og nú um stundir, á bankaleyndin ekki við. Þegar sterkur grunur er um ólögleg viðskipti, útlánareglur hafa verið brotnar í stórum stíl og svo virðist að undanskot á verulegum fjármunum hafi átt sér stað. Þá á almenningur rétt á að fá upplýsingar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Núna sýnist mér þér eitthvað vera að förlast og vera á leiðinni út af línu Samfylkingarinnar - Sei, sei!

Sigurjón Þórðarson, 1.8.2009 kl. 22:54

2 identicon

Það var mjög gott að sjá þessar glærur.

Bestu kveðjur.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 23:34

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sæll Sigurjón og þakkir fyrir umhyggjun, en mér er bara ekkert að förlast og þaðan af síður að yfirgefa eina flokkinn sem einhvert vit er í að fylgja á Íslandi í dag

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.8.2009 kl. 00:24

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Heyrði ekki betur í hádeginu en að Jóhanna Sigurðardóttir sé í megin atriðum sammála mér um lögbannið hjá Kaupþingi. Það ert þú Sigurjón sem ekki ert á línunni eða þannig

Hólmfríður Bjarnadóttir, 4.8.2009 kl. 13:33

5 identicon

Ja hérna Fríða mín það er eins gott fyrir þig að halda þig á línunni eða þannig.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 4.8.2009 kl. 18:10

6 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er víst svona hjá frjálslyndum, en alls ekki hjá jafnaðarmönnum, þar hafa allir jafnan rétt. Hann er reiður og það er hann vandi, en ekki minn. Kveðja fb

Hólmfríður Bjarnadóttir, 4.8.2009 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

31 dagur til jóla

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband