Vatnsnesingur fékk fálkaorðu fyrir að kveða stemmur.

Mikið var ég glöð að sjá að María Jónsdóttir fékk fálkaorðuna á Bessastöðum í dag. María er bóndakona úr Fljótshlíðinni, en fædd og uppalin í Hlíð á Vatnsnesi V Hún. Faðir hennar Jón Lárusson var geysi góður kvæðamaður og til að upptaka af kveðskap hans og barna hans. Jón sonur Maríu sem lést á síðasta ári, var líka gríðarlega góður kvæðamaður. Komu þau mæðginin fram saman og kváðu við góðan orðstír. Listin að kveða er eitt af því sem við skulum halda til haga og iðka hvenær sem færi gefst. Hamingjuóskir til Maríu og fjölskyldu hennar með þessa góðu og verðskulduðu viðurkenningu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já orðan er örugglega verðskulduð

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 2.1.2009 kl. 02:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

250 dagar til jóla

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband