26.12.2008 | 14:41
Nætur með Arnarldi
Ég eyddi 2 síðustu nóttum með bókina hans Arnaldar Indriðasonar, Myrká milli handanna. Slíkur lestur verður enn áhrifameiri í myrkrinu og þá er líka betra næði til að lifa sig inn í heim fólksins á blaðsíðunum. Hvílíkt vald á orðum og tjáningu þeirra, á persónusköpun og aðstæðum sem fólk ratar inn í. Þarna er tekið á mannlegum brestum, mölbrotnum sálum, gömlum vondum uppeldisaðferðum, já á svo ótalmörgu á sama tíma án þess að slíkt skyggi hvað á annað. Þessi bók er hrein snilld og gerir lesendur kröfuharðari á aðra höfunda og aðrar bækur.
Miklar þakkir Arnaldur fyrir þessa stórkostlegu bók.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
31 dagur til jóla
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú hefur greinilega átt góðar nætur með Arnaldi.
Hafðu það gott Fríða mín.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 28.12.2008 kl. 12:35
Þetta er höfundur á heimsmælikvarða og ekki bara á glæpasviðinu, heldur eru mannlýsingar hans frábærar og nærfærni gagnvart persónum mikil. Hann fjallar mikið um konur í þessari bók og mér finnst hann gera það af mikilli sanngirni, nærgætni og heilindum. Svo skemmdi ekki að bókin var árituð af höfundinum.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 29.12.2008 kl. 01:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.