18.12.2008 | 18:11
Hvað er í gangi, er ekki nóg annað að gera á Íslandi í dag ??
Ég verð ekki oft kjaftstopp, en nú er ég það. Var þetta ekki afgreitt mál og er ekki nóg annað í að líta þessa dagana. Er ekki nær að verja peningum samfélagsins í eitthvað þarfara.
Ákært á ný í Baugsmálinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
32 dagar til jóla
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 110485
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
jú sammála, verum ekkert að ákæra menn sem hafa sett þjóðarbúið í þrot, við höfum pottþétt margt annað þarfara að gera við peninginn......jú eins og tildæmis borga skuldir þessara sömu manna !
Ingólfur Þór Guðmundsson, 18.12.2008 kl. 18:23
Þegar búið er að fara með málið fyrir dóm og ljúka því, hélt ég að það væri afgreitt. Þetta hefur ekkert með það að gera hverjir eiga í hlut. Sé þörf á að ákæra menn fyrir afbrot þá er það gert og málið klárað, en til að ákæra að nýju verða þeir hinir sömu að hafa gert eitthvað annað af sér.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 18.12.2008 kl. 18:27
Þú misskilur Hólmfríður. Þetta tekur aðeins til skattalagabrota, sem voru undanskilin í fyrra málinu. Skattamál fara aðra leið í kerfinu.
Andrés Magnússon, 18.12.2008 kl. 20:41
Þá veit ég það og ekkert við því að gera þó ég hafi ekki skilið rétt. En ég er sammála Sigurði Líndal varðandi þann óratíma sem þessi mál hafa tekið.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 18.12.2008 kl. 22:05
Í vor dæmdi Hæstiréttur að fleturnar með Fjárfar og lánaveitingar til JÁJ, TJ og KJ og lán Baugs til Gaums og Gaums Holding væru eðlilegur bissnes. Í öllum þessum lánveitingum til og frá yfirsást þeim að telja gjörninginn fram til skatts og fyrir það sæta þau nú ákæru. Ekki var hægt að ákæra þau fyrr því ekki má ákæra nema einu sinni í hverri ákæru. Hefðu þau verið ákærð fyrir fjársvik hefðu þau ekki verið ákærð í dag. Fjölmiðlar, sérstaklega Baugsmiðlarnir vilja ansi oft gleyma að greina frá staðreyndunum . Kannski er þeim sagt að gera það, það er líklegra heldur en að um sé að ræða óvönduð vinnubröð blaðamanna.
Ingvar
Ingvar, 18.12.2008 kl. 23:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.