14.9.2007 | 23:40
Umhverfismál á heimsvísu.
Mikið er ég stolt af þeirri framsýni sem lýsir sér í útrás orkufyrirtækjanna. Nýting jarðhita er afskaplega mikilvægur þáttur í grænu orkunni sem öll heimsbyggðin þarf svo mikið á að halda. Fyrirtækin sem að þessu standa eru afrakstur mikils hugvits sem hefur orðið til á undanförnum áratugum. Eins og kom fram í máli forstjóra OR hefur útrásarþátturinn verðið aðskilinn frá orkusölu til neytenda hér. Auðvitað er það krafa okkar neytenda á Íslandi að orkusala til okkar sé á samfélagslegum grunni og verðlagi stillt í hóf. Okkar auðæfi felast fyrst og fremst í þeirri gríðarlegu þekkingu og framsækni sem einkennt hefur rannsóknir jarðhita á Íslandi. Að fjárfestar erlendis hafi áhuga á að leggja fé í útrásin er af hinu góða. Við teljum eðlilegt að íslenskir fjárfestar kaupi sig inní rekstur erlendis og þá er eðlilegt að slíkt sé gagnkvæmt.
Um bloggið
94 dagar til jóla
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.