22.3.2010 | 14:44
Rannsóknarskýrslan dagsett.
Loks er komin dagsetning á birtingu Rannsóknarskýrslunnar. Það er mjög gott og nú getur allur almenningur og þeir sem málið varðar sérstaklega búið sig undir mikinn lestur. Rannsóknin er merkur viðburður í veraldarsögunni og marka vonandi þau tímamót að valdamönnum í stjórn- og fjármálum veraldarinnar verði aldrei aftur gefið slík sjálftökuheimild á völdum eins og hér átti sér stað. Nú verða afleiðingar slíkra aðgerða komnar formlega á einn stað, aðgengilegar almenningi og varðveittar til framtíðar. Við Íslendingar teljum okkur til lýðræðissamfélaga veraldarinnar og því er með ólíkindum að svona ævintýramennska, stjórnunarklúður og fjárglæfrar skuli hafa viðgengist um árabil. Við erum nú að leggja heiminum til einstakt kennsluefni á sviði hagstjórnarmistaka sem þjóðfélög skulu varast um alla framtíð.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
32 dagar til jóla
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 110485
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.