28.1.2010 | 21:56
Þjóðin stendur á öndinni!!!!!!!!!!
Nú er Steingrímur farinn með Silfurskeiðadrengina Bjarna og Sigmund til Bretlands og Hollands. Hvað mun gerast, koma góðar fréttir eða hvað. Rannsóknarnefndin keppist við að koma spillingunni á prent svo við öll getum lesið okkur til. Alþingismaður viðurkennir lögbrot í beinni meðan Bakkavararbræður kannast ekki við nein lögbrot, þrátt fyrir að hafa verið heilan dag í yfirheyrslum. Bjarni Ben er vafinn í vafasöm viðskipti sem sagt var frá í DV undir fyrirsögninni "Þeir stálu bótasjóðum Sjóvá". Útvarpstjóri er undir smásjánni, kvótahafar hóta að hætta að veiða fiskinn "sinn". Okkur er hætt að ofbjóða, sá þröskuldur er löngu farinn - hugsum þó í laumi - þetta getur ekki versnað - enn það versnar samt.
Ljósið í myrkrinu er handboltinn, landsliðið brillerar hvað eftir annað á EM. Kringlan tæmist meðan á leikjum stendur, ungir sem aldnir taka þessum gleðifréttum svo fegins hendi að augun ljóma og ICESAVE gleymist um stund.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
33 dagar til jóla
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 110484
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Steingrímur skilur þær Jóhönnu og Birgittu eftir og leyfir þeim ekki að koma með! Hvers vegna - af því að þær eru konur? Ég minni á Magrét Frímanns gaf í skyn í bókinni sinni að Steingrímur væri remba.
Sigurjón Þórðarson, 28.1.2010 kl. 22:35
Samfylkingin var svo ná tengd útrásarvíkingunum með fjármál flokksins og í kosningarsjóð frambjóðenda og einstaka frambjóðenda þar sem milljónar tugir skiptum um hendur með þá greiða í staðinn enda hefur Samfylkingin átt bágt með að standa við loforði um skjaldborg heimilanna að engin þar á bæ þótti þar hæfur til fararinna og henni ekki teyst, því miður.
Rauða Ljónið, 28.1.2010 kl. 23:20
Þetta er bæði ódýrt og ómerkilegt skot.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.1.2010 kl. 23:21
Er rauða ljónið að reyna að urra og er því eitthvað persónulega í nöp við Samfylkinguna.
Sigurjón átti svarið hér að ofan.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.1.2010 kl. 23:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.