Frestun framkvæmda hjá Verne Holding - í boði forseta Íslands

Þessar fréttir af frestun framkvæmda við gagnaver Verne Holding á Reykjanesi er aðeins forsmekkur af því sem koma skal. Þarna er frestun á staðfestingu ICESAVE laganna að orsaka töf, þar sem fjárfestingarsamningur vegna verksins liggur óafgreiddur á Alþingi. Þau handarbakavinnubrögð Ólafs Ragnars Grímssonar að skrifa ekki undir í gær, eru strax í dag orðin þess valdandi að fjöldi manns er að missa vinnu sína um óákveðinn tíma. Það er líka kaldhæðnislegt fyrir Árna Sigfússon sem mikið hefur talað um og þrýst á fleiri störf í því bæjarfélagi sem hann stýrir, að það skuli vera flokksbróðir hans í Hádegismóunum sem fjarstýrir þessum skelfilegu atburðum.


mbl.is Framkvæmdir við gagnaver stöðvaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Come on... kemur málinu ekkert við. Þú hlýtur að geta rifjað upp nýlegt ferli sem þetta mál er lent í.

Rúnar Þór Þórarinsson, 6.1.2010 kl. 15:47

2 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæl Hólmfríður,

Stöðvun vinnu var framkvæmd áður en Ólafur skýrði frá því að skrifa ekki undir lögin.  Þar sem hann sat svo vel á ákvörðun sinni að ekki einu sinni ríkisstjórnin hafði veður af henni finnst mér ólíklegt að Verne Holding hafi vitað um hana fyrirfram:)

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 6.1.2010 kl. 17:14

3 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Axel Þór Kolbeinsson, 6.1.2010 kl. 21:39

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þegar mál eru sett í slíkt uppnám eins og gert var hér í gær, er eðlilegt að svo stórt verk sé stöðvað. Atburðir gærdagsins geta í versta falli þýtt lokun lánalína erlendis frá og það vita forsvarsmenn VH mjög vel. Ég tel einsýnt að dráttur Ólafs á undirskrift og síðan hans ákvörðum séu þess valdandi að þetta verk stöðvaðist. Takk fyrir innleggið Arnór um tímasetninguna

ICESAVE málið hefur tafið störf Alþingis gríðarlega, en samkvæmt fréttum frá Iðnaðarráðherra í dag hefur málið farið í gegnum 1. umræðu. Enn og aftur, ég er þess fullviss að atburðir gærdagsins hafa sett þetta mál í mikið uppnám.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.1.2010 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

236 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 110253

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband