Mikið er ég glöð

Búið er að samþykkja á Alþingi tillögu um aðild að ESB. Nú finnst mér komin upp framtíðarsýn sem hægt er að búa við og treysta á. Við erum á leið út úr þeim myrkviðum sem klíkuflokkarnir komu okkur í. Ég óska okkur öllum innilega til hamingju með þennan merka áfanga og veit að hann verður okkur öllum til mikillar blessunar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki gleyma því Hólmfríður , að það var í ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, þegar Björgvin G. Sigurðsson (S) var Viðskiptaráðherra, að Icesave var hleypt af stokkunum en sú ráðstöfun er sennilega STÆRSTA orsök þeirrar ógæfu sem landið er í.

Jóhann Elíasson, 16.7.2009 kl. 14:53

2 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Innilega til hamingju með daginn - skoðanasystir (allavega í þessu máli).

Guðbjörn Guðbjörnsson, 16.7.2009 kl. 14:56

3 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Það er ástæða til að fagna - en málið er ekki í höfn. Nú eflast dómsdagspredikararnir um sinn. Það verður mikill reiðilestur sem þjóðin fær að heyra áður en yfir lýkur. Strax eru byrjuð upphróp um landráð þeirra sem samþykktu aðildarviðræður.

Hjálmtýr V Heiðdal, 16.7.2009 kl. 15:02

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Já hrópin halda áfram og nú verðum við líka að halda hinum jákæðu póstum á lofti. Mér fannst grátbroslegt að fylgjast með mörgum stjórnarandstæðngum í rökstuðningi sínum gegn tillögu um umsókn. Ég tel mig hafa skinjað samþykki í hjarta margra sem tóku flokkshollustu og valdablokkir framyfir þjóðarhag.

Hættu nú þessu rausi Jóhann, þú VEIST að þetta er bara bull, þú fyrirgefur

Hólmfríður Bjarnadóttir, 16.7.2009 kl. 18:49

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei Hólmfríður, nú er tími til kominn að þú takir ofan þín pólitísku gleraugu því þú VEIST að það sem ég skrifa þarna ER RÉTT og SATT.  Þú þarft ekki annað en að fara inn á vef Seðlabanka Íslands til að sjá að MESTA aukningin á erlendum skuldum þjóðarinnar var þegar Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn voru saman í ríkisstjórn og þarna varð Iceslave til.  Það eru fremur fátækleg rök að afgreiða það sem manni líkar ekki sem bull í stað þess að svara því bara málefnalega, það er þér til minnkunnar og skammar.

Jóhann Elíasson, 16.7.2009 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

219 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband