Sumargrautur með lummum og kaffi

Var að koma úr hádegismat í Laugarbakkaskóla. Þar var framborinn sumargrautur, þ.e. hrísgrjónagrautur með að án rúsína. Kanilsykur útá síðan kaffi og lummur. Þarna er verið að endurvekja gamlan íslenskan sið. Sumardagurinn fyrsti var mikill hátíðisdagur hér áður fyrr og það var siður að húsfreyjur geymdu grjón og sauðakjöt til sumardagsins fyrsta.

Þó matarskortur hefði verið nokkur eð mikill á útmánuðum, skyldu allir fá fylli sína á sumardaginn fyrsta. Soðið var sauðakjöt, gerður grautur, hellt uppá kaffi eins og hver vildi og bakaðir háir staflar af lummum. Brennivín var líka framborið og átt hver bóndi rétt á potti af brennivíni út á sinn reikning, hver sem skuldastaða hans var. Fólkið klæddist sparifötum og vann bar það alnauðsynlegasta, gefnar voru sumargjafir og þessi dagur var jafn aðfangadegi jóla í hugum margra.

Suðakjöti og brennivíni var sleppt í þessum sumarmálsverði, en verið var í leiðinni að kynna hugmyndir að nýtingu húsnæðis Laugarbakkaskóla, þegar skólahald verður allt flutt til Hvammstanga. Ekki er búiðað tímasetja þann flutning, en sú ákvörðun tengist því að búið verði að finna húsnæðinu framtíðaverkefni. Þær hugmyndir eru í smíðum, en ekki verður farið út í þær hér á þessu stigi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gleðilegt sumar Hólmfríður mín það hafa aldeilis verið flott hátíðarhöld á Laugarbakka. Gaman að endurvekja þessa gömlu siði frekar en að vera alltaf að apa eitthvað eftir öðrum þjóðum.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

220 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 110312

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband