Launafólk - varist "svarta vinnu" !!

Ég tel mig þekkja nokkuð vel til varðandi Vinnumálastofnun/vinnumiðlanir og vinnubrögð þar. Ef atvinnurekandi fær starfsmann í gegnum vinnumiðlun, er gerður um það sérstakur samningur og þar kemur meðal annars fram hver launakjör viðkomandi skulu vera að lágmarki.

Utanumhald þessara mála er orðið það gott í dag, að þetta er góð leið fyrir báða aðila, starfsmenn og vinnuveitendur.

Ég vil hins vegar vara mjög við svokallaðri "svartri vinnu" og hinni svokölluðu "gerviverktöku". Báðar þessar leiðir eru afskaplega varasamar.

Þar er starfsmaður að semja beint við vinnuveitandann, sem gjarnan notar þau falsrök, að hann sé að borga betur en þeir sem gefa allt upp.

Ég og margir aðrir starfsmenn stéttarfélaga og Vinnumiðlana, höfum séð skelfileg dæmi um fólk sem búið er að vinna á "svörtu" í svo og svo langan tíma.

Þetta fólk er búið að fyrirgera  öllum rétti sínum, bæði hjá stéttarfélögum og Vinnumálastofnun og hefur ekki í önnur hús að venda en að leita til síns sveitarfélags og hjálparstofnana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

240 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 110233

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband