Krossgötur

Við vitum oft ekki fyrr en eftir á að við höfum staðið á krossgötum í lífinu. Nú er það hins vegar svo að það fer ekki framhjá nokkrum manni sem á annað borð fylgist með þjóðmálum að við íslendingar í heild erum á virkilega afgerandi krossgötum. Stundum þurfum við áföll til að átta okkur og segjum svo á eftir, ekki hefði ég viljað missa af þessu. Ég held að það sé í raun ekki svo slæmt að svona sé komið hjá okkur, því nú neyðumst við til þess að horfast í augu við nokkrar staðreyndir með opin augum.

Við erum hluti af alþjóðapeningakerfinu og verðum það áfram. Örkrónan okkar er ekki lengur gjaldgeng og blessuð sé minning hennar. Til að taka upp aðra mynt (evru) verðum við að ganga í ESB. Við rekum núna um á björgunarfleka og höfum vistir til nokkurra vikna. Árabáturinn er sokkinn og land ekki í augsýn. Ætlum við að senda út neyðarkall og óska björgunar eða viljum við hýrast á flekanum??


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Hæ.

Ég heyrði einn góðan í gær.  Hann Höskuldur á dekkjaverkstæðinu vill láta breyta heitinu á krónunni.  Hún á að heita Neðra.  Þá getum við borgað í tveimur gjaldmiðlum:  Í Neðra og Í Efra.

En án gamans.  Það sem hefur gerst undanfarna daga er að menstu leyti afleiðing af því hvernig við höfum lifað.  Viðvarandi neikvæður vöruskiptajöfnuður og skuldasöfnun hlaut að taka enda.  Þess vegna féll gengið. Gengið hefur samt fallið mun meira en þessu nemur.  Það umfram fall er vegna þess að í fjármálakreppunni sem er á heimsvísu eru menn hræddir við að eiga krónu. Um leið og þeir sjá að hún mun fara up, þá vilja menn krónu umfram allt annað.  Það sem Seðlabankinn  og Ríkisstjórnin þyrfa að gara strax er að ákveða hvernig þeir ætla að koma á jafnvægi og búa til áætlun um að koma krónunni á þann stað að evran kosti svona 120.  Það þarf þjóðarsátt um að ná þessum markmiðum og ná niður verðbólgunni sem fyrst. Það þarf þjóðarátak til að við kaupum alltaf íslenskt þegar kostur er.  Það þarf yfirlýsingu um að við ætlum í Evrópusambandið, ef það er hagstætt fyrir okkur, eða yfirlýsingu um einhverja aðra framtíðarsýn og lýsingu á því hvernig við ætlum að ná markmiðum okkar, til lengri tíma.  Við þurfum að setja peningana okkar í menntun og fjárfestingu sem skilar betra þjóðfélagi en ekki gamblaravitleysu í úrlöndum eins og þeir sem keyptu ríkisbankana leiddust út í.  Þess vegan þarf betri löggjöf um bankastofnanir. 

Jón Halldór Guðmundsson, 4.10.2008 kl. 11:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

241 dagur til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband