Stormur hjá Sigurjóni í Sprengisandi í morgun.

„Ég verð því miður að ræða þetta við Jón á öðrum nótum. Ég tek ekki þátt í svona umræðum um keypta sérhagsmunapotara," sagði Friðrik Arngrímsson, framkvæmdarstjóri LÍÚ en það sló í brýnu á milli hans og Jón Baldvins Hannibalssonar, fyrrum ráðherra, í viðtali í útvarpsþættinum Sprengisandi sem blaðamaðurinn Sigurjón M. Egilsson sér um.

Þarna talaði Jón Baldvin tæpitungulaust um röksemdir LÍÚ gegn aðildinni að ESB, en þar á bæ er því hiklaust haldið fram að fiskimiðin kringum Ísland verði opnuð ríkjum ESB til veiða.

Jón Baldvin sagði hinsvegar alveg ljóst að Ísland héldi yfirráðum sínum yfir fiskveiðisvæðinu. Sameiginlega fiskveiðikerfið væri frekar hugsað fyrir þau Evrópulönd sem veiði á sömu miðum. Slíkt eigi ekki við Íslendinga.

Friðrik sagði að það skipti sköpum að Íslendingar færu sjálfir með samningaforræðið yfir deilistofnum en óttast að það verði ekki unnt um að halda því. Því myndi ráðherraráð ESB taka ákvarðanir um það fyrir hönd Íslendinga.

Þarna voru sjávarútvegsmálin til umræðu og ljóst að Friðrik J Arngrímsson er ekki vanur að fá sterk andmæli við sjónarmiðum LÍÚ í fjölmiðlum.

Jón Baldvin er auðvitað orðhákur mikill, en hann er líka mjög vel að sér um málefni ESB og er þar á heimavelli.

Ská og feitletrað með undirstrikun er úr grein ummálið á www.visir.is Leturbreyting mín.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

238 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 110242

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband