Bókin, Sofandi að feigðarósi.

Ég er nýbúin að lesa bókina Sofandi að feigðarósi eftir Ólaf Arnarsson þar sem  lýst er aðdraganda hrunsins.

Það er alveg rétt eins og ég hef margoft verið minnt á að Samfylkingin var við völd síðustu mánuðina fyrir hrunið og hef ég aldrei dregið neina fjöður yfir það, bara svo það sé á hreinu.

Í þessari bók er farið yfir einkavæðingu bankanna (tek það fram að ég er ekki andvíg einkavæðingu) og þeim vinnubrögðum lýst sem byrjað var að vinna eftir. Voru þau eins vönduð og kostur var. Á síðustu metrunum var allri undirbúningsvinnu ýtt út af borðinu og Landsbankinn seldur Björgólfsfeðgum. Þá ákvörðun tók Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra og nú vildi Framsókn fá  sinn hlut af kökunni og S hópurinn fékk Búnaðarbankann.

Krónan er sett á flot 2001 og enn er það Davíð sem ræður för. Hávaxtastefnan sem leiddi til þess að fólk og fyrirtæki tóku erlend lán í stórum stíl. Slakt eftirlit stofnana og tregða til að heimila fyrirtækjum að gera upp í erlendri mynt. Allt þetta var gert samkvæmt fyrirmælum og vilja Davíðs Oddssonar. Hann var síðan arkitektinn að þeim aðgerðum sem fóru fram þegar bankarnir féllu og aðalhagræðingu Seðlabankans heyrði um það í fjölmiðlum að ríkið væri búið að yfirtaka Glitni.

Óstjórn, valda og peningaklíkur sem myndast hafa hér á landi í gegnum árin er allt á ábyrgð og fyrir tilstilli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þeirra ábyrgð á hruninu er því mikil en langmestu ábyrgðina ber Davíð Oddsson. Hann er arkitektinn og útrásarvíkingarnir léku lausum hala með hans vitund og vilja.

Í bókarlok dregur höfundur saman megin inntak bókarinnar og þar eru eftirfarandi setningar afar athyglisverðar. Feitletrun er mín.

Þar segir á bls 210:

” Eftir sem áður er þó ljóst að það er Sjálfstæðisflokkurinn sem hafði tögl og hagldir undanfarna áratugi og varðaði veginn - Davíð og síðan Geir leiddu okkur í foraðið og hinir fylgdi þegjandi með.

Hin síðari ár var Davíð Oddsson stærsta efnahagsvandamál Íslands og hann sat í skjóli Geirs H Haarde.”


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

238 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 110242

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband