Hamhleypur í ríkissjórn Íslands

Það er ljóst af atburðum síðustu tveggja sólarhringa að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands eru miklar hamhleypur til verka. Fréttir eru af miklum árangri einstaka ráðherra í því gríðarlega slökkvistarfi sem fór í gang eftir sprengjuárásina frá Bessastöðum. Þar hefur tíma ekki verið eitt í óþarfa orðaleiki, heldur gengið fumlaust til starfa um leið og höggið kom.

Hlustaði á upphaf blaðamannafundarins frá Bessastöðum áðan. Fundurinn gekk út á allskyns orðaleiki og túlkanir forsetans til að freista þess að fegra hans hlið á málinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæl. Ólafur Ragnar Grímsson Útvörður Íslands sverð þess og sómi  er búin að afreka meira á 2 dögum heldur ríkistjórnin á tæpu ári.

Rauða Ljónið, 7.1.2010 kl. 18:26

2 Smámynd: Björn Heiðdal

Fólk sem kýs og styður Samfylkingunna er það gáfaðsta og besta á öllu Íslandi.  Það kann ekki að ljúga eða blekkja né heldur stela.  Allar gjörðir þess eru fyrir hagsmuni heildarinnar.  Þetta fólk er að vinna óeigingjarnt starf til að bjarga Íslandi frá þjóðinni sjálfri.  Í dag stendur deilan um það hvort sjálfur forsetinn hafi leyfi til að hafna þessum lögum.  Sitt sýnist hverjum en flestir eru þó á því að hann hafi fullt leyfi til þess.  En rök gáfaða og réttsýna fólksins í Samfó er að ákvörðun Óla sé ólýðræðisleg og benda á Kaliforníu sem einhvert hámark vitleysunnar sem hlýst af þjóðaratkvæðagreiðslum.  Ef valið stendur á milli einræðis í anda Davíðs Oddssonar og Samfylkingarinnar eða þjóðaratkvæðagreiðslu, vel ég lýðræði og atkvæðagreiðslu meðal þjóðarinnar.  

Björn Heiðdal, 7.1.2010 kl. 21:15

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þau lög sem Ólafur Ragnar kaus að skrifa ekki undir, innihalda breytingar við gildandi lög um milliríkjasamning. Þau eru að mínu mati og margra annarra ekki tæk slíka atkvæðagreiðslu þar sem málið er allt afar flókið og tæplega hægt að ætlast til þess að almenningur hafi tök á að kynna sér það til hlítar. Ólafur Ragnar er ekki með þessari ákvörðum að auka lýðræði á Íslandi með þessari aðgerð. 

Deilan stendur um skynsemi þessarar ákvörðunar, en ekki hvort hún hafi verið heimil. Forsetinn hefur svo sannarlega fulla heimild samkvæmt stjórnarskránni til að skrifa ekki undir.

Ríkisstjórnin er að byggja hér upp hrunið samfélag og það er því með ólíkindum að forsetinn hafi valið að tefja það starf. Ég skal ekki fullyrða að við sem kýs og styður Samfylkinguna sé það gáfaðasta og besta á öllu Íslandi, en það er alveg örugglega það skynsamasta og réttsýnasta á Íslandi.

Sverð og sómi segir þú Rauða ljón. Ólafur veifaði vissulega sínu sverði en um sómann efast ég ákaflega mikið.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.1.2010 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

228 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 110286

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband