Össur stóð sig vel á ögurstundu

Er ekki búin að sá Mannamál en er búin að sjá glefsur af því sem fram kom á vísi.is og hér á mbl.is. Þar koma fram upplýsingar sem gleðja mitt Samfylkingarhjarta. Að hann hafi komið í veg fyrir að Davíð stýrði hópi ráðherra og embættismanna sem mundi annast björgunaraðgerðir í bankahruninu og að það hefði verið Össur sem lagði fram bókunina um að Davíð starfaði ekki sem Seðlabankastjóri í umboði Samfylkingarinnar. Greinilegt er að mikið hefur gengið á innan ríkistjórnarinnar á þessum tíma og gerir sjálfsagt ennþá. Það er okkur Íslendingum mikil gæfa að það skuli einmitt vera Samfylkingin sem er með Íhaldinu í ríkisstjórn, en ekki einhver lítill jáflokkur eins og Framsókn sem jafnframt er kolflæktur í þau fortíðarvandamál sem eftir er að greiða úr og læra af. Samfylkingin er öflugur flokkur með kröftuga stjórnmálamenn á Alþingi og í ríkisstjórn. Nú um stundir setjum við undir okkur hausinn og þolum fylgistap í skoðanakönnunum, en vinnum okkur af öryggi og festu í gegn um þau verkefni sem eru á borðinu. Takk Össur og takk þið öll hin í Samfylkingunni.


mbl.is Bókunin frá Össuri komin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þið ætlið að koma ykkur inn í EU til okkar þá haldi Samfylkingin sem fastast í stjórnarsamstarf með D því VG eru jú alveg á móti öllu slíku

nolli (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 22:54

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Samfykingin verður aðhalda út með Íhaldinu, það er alveg morgunljóst í mínum huga. VG er fyrst og fremst að teyja lopann og flækja hlutina.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.12.2008 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

243 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband