Ný Stjórnarskrá er forgangsmál !

Síðustu dagar hafa farið í að velta því fyrir sér fram og aftur af hverju og hvers vegna Hæstiréttur sá sig knúinn til að ógilda kosningar um Stjórnlagaþingið sem hefjast átti 15. febr. nk. Talað hefur verið um hver á að segja af sér - hvað þetta kostaði - er nauðsynlegt að endurskoða Stjórnarskrána. Margir hafa fengið útrás í að kenna hver öðrum um - tala niðrandi um stjórnmálamenn og þar fram eftir götunum.

Það sem mestu máli skiptir er að okkur íslendinga vantar nýja stjórnarskrá. Um það geta allir verið sammála og ekki í fyrsta sinn sem peningar hafa farið í vinnu við gerð hennar án nokkurs sýnilegs árangurs. Búið var að kjósa til Stjórnlagaþings en tiltekin atriði við framkvæmd kosninganna talin þess eðlis að dæma beri þær ógildar.

Þá er bara að hefja nýja vegferð og vanda sig betur. Landskjörstjórn sagði af sér og forysta stjórnmálafokkanna verið boðuð á fund eftir helgi. Er ekki nær að klára málið og fá nýja Stjórnarskrá, en að vera að eyða orku sinni í að skíta hvert annað út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

270 dagar til jóla

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband