Björólfur vill borga sínar skuldir

Skýrslan er smám saman að skila árangri og ábyrgðaraðilar hrunsins að stiga fram. Björgólfur Thor í dag, viðurkennir sinn þátt og vill gera upp. Vona bara að hann sé borgunarmaður fyrir sínum skuldum. Jákvæðar fréttir og vonandi berast okkur fleiri slíkar. Þetta segir mér að smám saman muni rætast úr þeim vanda sem við er að glíma og það er vel


mbl.is Lánin verða gerð upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Og þér finnst eðlilegt að maður sem kemur jafnmikið við sögu í skýrslunni og Bjórgólfur gerir hafi ekki fengið að svara neinum spurningum eða gefa skýringar -

eða hvað?  hin ósnertanlega heilaga þrenning sá ekki ástæðu til þess - hve margir aðrir eru bornir sökum á skýringa í skýrslunni sem eru í sömu stöðu ??

Ólafur Ingi Hrólfsson, 19.4.2010 kl. 16:33

2 Smámynd: Benedikta E

Hólmfríður þú ert ótrúleg - trúir þú því sem Björgólfur Thor segir - loforðin hans eru eins og gatasigti hann er orðinn smá hræddur og reynir að róa sig með lyginni.

Benedikta E, 19.4.2010 kl. 20:45

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sæll Ólafur Ingi. Björgólfur mun örugglega fá sitt tækifæri til að svara, tel nokkuð líklegt að hann það hjá Sérstökum Saksóknara eins og margir aðrir sem getið er um í Skýrslunni og þar verður farið með mál þeirra allra samkvæmt lögum.

Ekki veit ég til þess að Heilagri þrenningu hafi verið blandað í vinnu rannsóknarnefndarinnar.

Benedikta. Það kemur hvergi fram í minni færslu hvort ég trúi orðum Björgólfs Thor eða ekki. Það er heldur ekki aðalmálið. Sérstakur Saksóknari mun örugglega rannsaka mál BTB og vel getur verið að sú rannsókn sé hafin

Hólmfríður Bjarnadóttir, 20.4.2010 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

245 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 110195

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband