Skuldaklafi er mjög heilsuspillandi !!!

Ég hef ekki vantreyst kunnáttu Vilhjálms Þorsteinssonar eða Marinós G Njálssonar til að leysa reikningsdæmi fram að þessu – miðað við forsendur sem þeir gefa sér – er útkomurnar örugglega réttar.

Þeir eru með gjörólíka sýn á vanda heimilanna og fá þar af leiðandi mjög ólíkar niðurstöður. Ég er sammála Marinó og mörgum fleirum um að leiðrétta verði forsendubrestinn sem varð hjá húsnæðiseigendum eftir Hrunið.


En málið snýst um fleira en að karpa um tölur á blaði – það snýst um líf og heilsu fjölda fólks – líf eða dauða í sumum tilfellum – það snýst um að stórir hópar eru í raun þrælar okurs og slíkt rýrir lífsgæði mjög verulega. Ég þekki þessa hluti á eigin skinni og veit um hvað málið snýs.


Ég varð gjaldþrota 1985 í kjölfar þess að verðtryggingin var sett á gildandi lánasamninga í óðaverðbólgu – vorum með rekstu á eigin kennitölu sem ekki þoldi breytinguna með neinum hætti. Algjör forsendubrestur þar og vafalaust á gráu svæði lagalega.

 Ég (við) var/vorum í áratugi að greiða niður lán með persónulegum ábyrgðum vina og fjölskyldumeðlima – svo þau féllu ekki á ábyrgðarmenninga. Á sama tíma keyptum við til baka (því miður) húsið okkar á verðtryggðum lánum frá Húsnæðisstofnum ríkisins samkvæmt lögum frá 1986.


Skuldafjötrar eru mikið böl og afar heilsuspillandi – ég ræddi þessa hluti við Sparisjóðsstjórana sem sátu á móti mér við borðið – það var eins og þeir gerðu sér ekki grein fyrir þeirri hlið málsins – því miður – skildu ekki sálarangistina – vissu ekki um kvíðann – magabólguna – svefnleysið og þar fram eftir götunum.


ÞVÍ SEGI ÉG – ÞAÐ VERÐUR AÐ LEIÐRÉTTA FORSENDUBRESTINN – ÞÓ ÞAÐ KOSTI – ÞAÐ ER SVO RÁNDÝRT AÐ GERA ÞAÐ EKKI.


Bloggfærslur 7. febrúar 2012

Um bloggið

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

Höfðagötu 1 531 Hvamms-tanga.

Fædd 1945 og er Húnvetningur í báðar ættir. Fædd steingeit og mikið fyrir að príla eins og geitum er tamt. Á ekki lengur ferðaþjónustuna, en aðrir tóku við keflinu í vor. Í haust fékk fyrirtæki þeirra, Selasigling ehf viðurkennigu frá Ferðamannastofu sem frumlegasta nýjungin í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ég er stolt og glöð með þessa viðurkenningu, fyrir hönd okkar hjóna og þeirra sem héldu frumkvöðlastafinu áfram. Er núna að hanna og prjóna pils úr lettlopa sem á að selja ferðamönnum. Ég er gift Sævari Jónatanssyni, við eigum 4 börn og 8 barnabörn.

212 dagar til jóla

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Grill 036
  • Grill 035
  • Grill 035
  • Kosningar 2033
  • Grill 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 106812

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband